Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!
Bómolía er hrein olía sem nota má á allan líkamann og í andlit. Olían er notuð á margvíslegan máta t.d.; sem nuddolía, til að bera á börn, til að setja útí baðvatn, til að mýkja upp skán í hársverði, til inntöku og til að mýkja upp eyrnamerg.
Notkunarleiðbeiningar:
Til að leysa upp eyrnamerg: leggið höfuðið út á hlið og látið 1-3 dropa renna inní hlustina. Bestur árangur næst ef olían er sett í eyrað að kvöldi til og leyft að virka yfir nóttina. Daginn eftir þarf að þrífa úr ytra eyranum umfram olíu og uppleystan eyrnamerg sem hefur skilað sér út. Varast skal að fara með eyrnapinnann inn í hlustina!!
Til að mýkja upp skán í hársverði: berið olíuna í hársvörðinn og leyfið að bíða í a.m.k. 1 klst. Bestur árangur næst ef olían er borin í hársvörðinn að kvöldi til og leyft að virka yfir nótt. Daginn eftir er hársvörðurinn greiddur með mjúkum bursta eða greiðu þannig að skánin fari. Varast ber að greiða of fast til að særa ekki húðina. Til að viðhalda árangrinum getur þurft að bera olíuna í hársvörðinn reglulega.
Til inntöku: 1 msk. daglega fyrir fullorðna.
Geymsla: Geymist við stofuhita eða í kæli.
Innihald (INCI): Olea europaea oil
Innihald: Extra virgin ólífuolía
Umbúðastærð: 100 ml flaska með spraututappa
Vörunúmer (100 ml): 12000043
APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.