Framúrskarandi fyrirtæki 2024

Pharmarctica hefur hlotið titilinn Framúrskarandi fyrirtæki. Ár hvert vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn.

Er þetta sjötta árið í röð sem Pharmarctica situr á þessum lista.

Það sem Creditinfo hefur til hliðsjónar við mat sitt er eftirfarandi:

  • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
  • Ársreikningi skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag
  • Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
  • Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Rekstrartekjur að lágmarki 60 milljónir króna reikningsárið 2023, 55 milljónir króna reikningsárið 2022 og 50 milljónir króna reikningsárið 2021
  • Rekstrarhagnaður (EBIT > 0) síðustu þrjú ár
  • Jákvæð ársniðurstaða síðustu þrjú ár 
  • Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
  • Eignir að minnsta kosti 120 milljónir króna reikningsárið 2023, 110 milljónir króna reikningsárið 2022 og 100 milljónir króna reikningsárið 2021