Opið hús

Laugardaginn 9. nóvember 2024 var opið hús hjá Pharmarctica þar sem gestum og gangandi var boðið að koma og skoða nýja framleiðsluaðstöðu félagsins eftir gríðarmiklar framkvæmdir síðustu 2 ár, þar sem reist hefur verið um 1.500 fermetra viðbygging, sem samanstendur af lager, rannsóknarstofu, skrifstofum og auknu framleiðslurými, til viðbótar við þá 560 fermetra sem fyrir voru. Einnig hafa verið gerðar endurbætur á eldra húsnæði fyrirtækisins til að bæta framleiðsluaðstöðuna.

Mjög vel var mætt eins og sést á meðfylgjandi myndum og þakkar Pharmarctica öllum kærlega fyrir komuna.